Helgarferð til Prag
34 starfsmenn Sveinbjörns Sigurðssonar hf, ásamt mökum, brugðu sér í helgarferð til Prag 4.október s.l.. Gist var á frábærlega vel staðsettu hóteli, Novatel, í miðbænum þannig að stutt var að fara til að komast í aðal kjarna borgarinnar. Ferðalangar fóru í skoðunarferðir um gamla bæinn á föstudeginum og síðan um kastalahverfið á laugardeginum undir leiðsögn Soffíu og Pavels farastjóra Heimsferða.
Margir veitingastaðir voru heimsóttir, þ.a.m. Góði dátinn Sveik og La Brasserie M. Á laugardagkvöldinu bauð fyrirtækið til veislu á Metamorpis og tókst hún frábærlega. Góður matur og allir í miklu stuðu - Daði fór á kostum með nýja gítarinn!
