Verslunarmiðstöðin Þjóðbraut.
Síðastliðinn laugardag, 19. maí opnaði ný verslun Bónus í verslunarmiðstöðinni Þjóðbraut á Akranesi. Á myndinni má sjá Jóhannes Jónsson með “lykilinn” af búðinni ásamt vöskum flokki starfsmanna SS. Þess má geta að þetta er 26. bónusverslunin og önnur í röðinni sem Sveinbjörn Sigurðsson hf. byggir.
