Við höldum áfram að byggja upp

Undirskrift verksamnings

Þann 17.september sl. skrifuðu Sveinbjörn Sigurðsson hf. og Félag eldri borgara í Reykjavík undir samning um byggingu 49 íbúða að Hólabergi 84, 111 Reykjavík. Að auki verða 37 bílastæði í kjallara.

lýsing:

Um er að ræða nýja kynslóð húsnæðis fyrir eldri borgara hérlendis; byggingin samanstendur af þremur húshlutum er tengjast með yfirbyggðri göngugötu. Af göngugötunni verður innangengt í Menningar- og þjónustumiðstöðina Gerðuberg, en að henni liggja einnig lokuð samverurými íbúa og þaðan verður jafnframt aðgengi að opnu garðsvæði.

Áætlað er að bygging 1.áfanga hússins, sem í eru 31 íbúð ásamt bílakjallara, hefjist fljótlega á næsta ári.

Hornsteinar Arkitektar munu sjá um hönnun hússins og BYR fasteignasala mun sjá um sölu íbúða.

Áhugasömum kaupendum er bent á kynningarfund er verður um verkefnið í Gerðubergi föstudaginn 22.október kl. 16:00.