Undirskrift verksamnings við Félagsstofnun stúdenta

Þann 27.janúar sl. skrifaði Sveinbjörn Sigurðsson hf. undir verksamning við Félagsstofnun stúdenta um byggingu 300 stúdentaíbúða að Sæmundargötu í Reykjavík. 

Verkinu skal skilað í tveim áföngum og er 1.áfanga skilað í lok júlí 2013 og 2.áfanga skilað í desember sama ár. Unnið er hörðum höndum við hönnun hússins ásamt því að jarðvinna fer fljótlega af stað á svæðinu.