Undirritun verksamnings um byggingu stúdentaíbúða
Þann 27.janúar sl. var skrifað undir verksamning á milli Sveinbjörns Sigurðssonar hf. og Félagsstofnunar stúdenta um byggingu 300 stúdentaíbúða að Sæmundargötu í Reykjavík. Um er að ræða stærstu uppbyggingu Félagsstofnunar á svæði Háskóla Íslands ásamt því að þetta er einn stærsti verksamningur sem Sveinbjörn Sigurðsson hf. hefur tekið að sér. Samningsfjárhæð er um 2,5 milljarðar.
Um var að ræða forval og alútboð þar sem Sveinbjörn Sigurðsson hf. var valinn ásamt þremur öðrum verktökum til að bjóða í bæði hönnun og byggingu mannvirkjanna. Arkitektar að mannvirkjunum eru Hornsteinar Arkitektar.
Þess má geta að Sveinbjörn Sigurðsson hf. stóð einnig að byggingu 80 stúdentaíbúða fyrir Félagsstofnun að Skógarvegi 18-22 fyrir um 2 árum. Hönnuðir þar voru einnig Hornsteinar Arkitektar.
Áætlaður verktími er um 2 ár, en 1.áfanga verður skilað í júlí 2013 og 2.áfanga í desember 2013. Unnið er hörðum höndum að hönnun húsanna ásamt því að jarðvinna hefst innan skamms á byggingasvæðinu.
|
|
|
|
|
|
|
|
