Sundlaugin á Hofsósi fær verðlaun
Á föstudaginn 18.febrúar sl. fékk sundlaugin á Hofsósi Steinsteypuverðlaunin 2011. Er þetta í annað sinn sem verðlaunin eru veitt. Það var Sveinbjörn Sigurðsson hf. sem sá um framkvæmdahliðina fyrir sveitafélagið Skagafjörð.
Óskum við öllum aðilum sem að framkvæmdinni komu innilega til hamingju með vandað verk sem og íbúum Hofsóss með glæsilega sundlaug.
hér er hlekkur á fréttina:
http://www.nmi.is/nyskopunarmidstod/frettir/frettir-nyskopunarmidstodvar/nr/1305/
myndir eru fengnar að láni frá Verkís.
|
|
|
|
|
|
