Skógarvegur 18-22
Vinna á fullu við stúdentaíbúðir Starfsmenn Sveinbjörns Sigurðssonar hf. ásamt undirverktökunum FONSA, Heiðarholti, Arnarverk og GG járnaverktökum eru að vinna að kappi við byggingu stúdentaíbúða fyrir Félagsstofnun stúdenta. Silfursteinn ehf. er svo að koma sér fyrir á byggingastað og mun hefja framkvæmdir eins hratt og hægt er.
í dag voru steyptir 50 m3 og er þá alls búið að steypa 213 m3, áætlað er að skila íbúðunum í desember á þessu ári. Í tilefni dagsins býður Sveinbjörn Sigurðsson hf. starfsmönnum og undirverktökum þeim er vinna að verkinu i pizzuveislu kl. 15 í dag.
