Skóflustunga að 49 íbúðum fyrir Félag eldri borgara

Þann 11.mars sl. var fyrsta skóflustunga að 49 íbúðum fyrir Félag eldri borgara í Reykjavík tekin. Íbúðirnar verða byggðar að Hólabergi 84, en lóðin er staðsett fyrir aftan Menningarmiðstöðina Gerðuberg. Íbúðirnar verða tengdar við Gerðuberg og geta íbúar því nýtt sér þá þjónustu sem Gerðuberg veitir.

Unnið er að samþykki teikninga hjá byggingaryfirvöldum og áætlað er að framkvæmdir hefjist nú í apríl og afhending íbúða verði í október-nóvember 2012.

Þeir sem vilja kynna sér íbúðirnar er bent á BYR fasteignasölu, www.byrfasteign.is og í síma 483 5800.

 

Hlekkur á frétt Reykjavíkurborgar um skóflustunguna:

frétt Reykjavíkurborgar