Nýr verksamningur

Í dag, 18.febrúar 2011, skrifaði Sveinbjörn Sigurðsson hf. undir verksamning um frágang utanhúss að Mánatúni 3-5. Í stuttu máli snýst verkið um að halda áfram með það sem fyrir var í klæðningum að utan og ljúka þeim. Eftirlit fyrir hönd verkkaupa er í höndum Ferils ehf.

Framkvæmdir af hálfu Sveinbjörns Sigurðssonar hf. hefjast 1.mars og áætluð verklok eru 30.júní 2011.