Ný álma MS-félagsins
"MS félag Íslands tók í dag notkun nýja álmu við húsnæði félagsins, MS heimilið að Sléttuvegi 5 í Reykjavík. Nýja álman gjörbyltir aðstöðu til að veita þeim sem greinst hafa með MS sjúkdóminn nauðsynlega aðhlynningu og þjálfun. Þá opnast nýir möguleikar á að veita aukna þjónustu á sviði heilsuræktar, jógaiðkunar og félagsstarfsemi.
MS-heimilið gegnir mikilvægu hlutverki sem miðstöð fyrir fólk með MS-sjúkdóminn og þangað sækja yfir 70 einstaklingar þjónustu í viku hverri. Nýja álman er 180 fermetrar að stærð og kostnaður við bygginguna nam tæpum 60 milljónum króna. Minningarsjóður Margrétar Björgólfsdóttur veitti MS félaginu 20 milljónir króna í styrk á síðasta ári fyrir byggingunni og var fyrsta skóflustungan tekin í mars 2007. Framkvæmdasjóður fatlaðra og Alþingi lögðu einnig til myndarleg framlög til byggingarinnar.
Sigurbjörg Ármannsdóttir, formaður MS félagsins, og Þóra Hallgrímsson, móðir Margrétar Björgólfsdóttur, vígðu nýju viðbygginguna að viðstöddum fjölda félagsmanna, aðstandenda og velunnara MS félags Íslands. Sigurbjörg sagði við opnun þessa þriðja áfanga heimilisins, að þetta væri gleðidagur í sögu félagsins og sagði formaðurinn m.a., að "við byggingu þriðja áfangans, sem við opnum nú var það höfðinglegur styrkur úr Minningarsjóði Margrétar Björgólfsdóttur, sem réði úrslitum um að hægt var að hefjast handa."
þess má geta að Sveinbjörn Sigurðsson hf. byggði nýju álmuna og afhenti með stolti í gær ( þann 24.janúar 2008) ávísun að upphæð 300.000,- kr til starfsemi félagsins.
