Hornsteinn lagður í nýtt vallarhús íþróttafélagsins Gróttu

19.jpgMiðvikudaginn 22.apríl sl. var hornsteinn lagður í tilbúið vallarhús íþróttafélagsins Gróttu á Seltjarnarnesi. Það var bæjarstjórinn Jónmundur Guðmarsson sem fékk það verkefni í hendurnar.

Samhliða þessum gjörningi afhenti bæjarstjóri íþróttafélaginu húsið formlega til afnota og er aðstaðan öll hin glæsilegasta.

Það var Sveinbjörn Sigurðsson hf. sem byggði mannvirkið eftir teikningum Hornsteina Arkitekta.

Óskum við Seltirningum öllum innilega til hamingju með frábæra aðstöðu við knattspyrnuvöll bæjarins.