Guðríðarkirkja

15.jpgÞann 7.desember sl. var Guðríðarkirkja við Kirkjustétt í Grafarholti vígð af Biskupi Íslands.

Guðríðarkirkja er fyrsta kirkja á Íslandi sem byggð er í lokuðu alútboði. Fjórir verktakar tóku þátt í útboðinu og varð Sveinbjörn Sigurðsson hf. hlutskarpastur. Arkitektar kirkjunnar eru Þórður Þorvaldsson og Guðrún Ingvarsdóttir hjá Arkþingi ehf. Með Arkþingi ehf. unnu Landhönnun, Almenna Verkfræðistofan, Fagtækni og Trivium ráðgjöf að gerð tillögunnar. Verkstjóri og yfirsmiður kirkjunnar er Finnur Jóhannsson. Verkefnastjóri var Ármann Óskar Sigurðsson. Að jafnaði unnu 5-10 starfsmenn SS við bygginguna auk undirverktaka. Byrjað var á jarðvinnu í júní 2007 og lauk uppsteypu að mestu í apríl á þessu ári, hófust þá innanhússframkvæmdir.